NÁMSKEIÐ 1 · GRUNNNÁMSKEIÐ Í AÐ LESA FÓLK

Allir bera grímu.

Lærðu að sjá manneskjuna á bak við hana.

Netnámskeið á íslensku um það sem liggur undir orðum og hegðun fólks: hvað það þarf frá öðrum, hvernig það tekur ákvarðanir og hvað það hefur eltst við alla ævi. Ekki til að afhjúpa neinn, heldur til að skilja.

5 einingar · 49 lexíur · Stutt æfing í hverri · Ein greiðsla

KANNAST ÞÚ VIÐ ÞETTA?

Orðin eru sjaldnast öll sagan.

FJÖLSKYLDUBOÐIÐ

„Hún er alltaf svo hress.“

Hún brosir, hlær og sér um að öllum líði vel. Það spyr enginn hvernig henni líði sjálfri, því hún virðist hafa það svo gott.

EFTIR ATVINNUVIÐTALIÐ

„Æi, slepptu þessu.“

Þú spyrð systur þína hvernig gekk og færð stutt svar til baka. Það er auðvelt að taka því persónulega. En kannski snýst þetta ekki um þig.

ERFIÐ VIKA

„Þetta reddast.“

Vel meint. En stundum þarf fólk frekar að heyra: „Þetta hljómar virkilega erfitt.“

ÞEGAR VINUR SÝNIR ÞÉR VERKIÐ SITT

„Flott, en …“

Vinur sýnir þér eitthvað sem hann hefur unnið að í margar vikur. Þú sérð strax hvað mætti laga og segir það. Hann kinkar kolli, en eitthvað slokknar.

Á FUNDINUM

„Einn segir já, annar nei.“

Sama hugmynd fær ólík viðbrögð. Oft snýst það minna um hugmyndina og meira um það hvernig hver og einn velur.

SÁ SEM ÞIGGUR ALDREI HJÁLP

„Mér finnst bara best að gera hlutina einn.“

Flestir heyra þrjósku. En hvað ef eitthvað annað liggur undir?

Prófaðu smálexíuna

Allt eru þetta venjuleg augnablik. Í námskeiðinu lærir þú að sjá hvað gæti legið að baki þeim, svo þú getir brugðist við manneskjunni en ekki bara orðunum.

UM NÁMSKEIÐIÐ

Frá dómi til skilnings.

Flest hlustum við á það sem sagt er. Þetta námskeið kennir þér að taka eftir því sem liggur undir: hvers vegna manneskja segir það sem hún segir, hvað hún sækist eftir og hvernig hún tekur ákvarðanir.

Þetta er ekki kenning sem þú lest einu sinni og gleymir. Þetta er færni sem byggist upp með æfingu, eins og að læra nýtt tungumál. Byggt á sálfræði og rannsóknum á mannlegri hegðun.

  • i.

    Að sjá skýrar. Taka eftir orðavali, sögum, endurtekningum og hegðun, og tengja þær við það sem drífur manneskjuna áfram.

  • ii.

    Að taka hlutum síður persónulega. Hrjúft viðmót segir oft meira um grímu og sögu hins en um þig.

  • iii.

    Að velja réttari orð. Ekki fleiri orð, heldur réttari orð: orð sem passa því sem skiptir manneskjuna máli.

„Allt sem þú lærir hér er til þess að skilja fólk betur og þjóna því betur. Aldrei til að blekkja, niðurlægja eða nýta sér sár annarra.“

— Úr inngangi námskeiðsins

HVAÐ ÞÚ FÆRÐ

Fimm einingar. Ein heildstæð mynd.

Hver lexía hefur texta, lykilatriði og stutta æfingu. Taktu með þér stílabók og penna; þú lærir mest á því að skrifa niður það sem þú tekur eftir.

5

einingar

49

lexíur

49

æfingar

  1. 01

    Velkomin (4 lexíur)

    Markmið námskeiðsins, Árangursþríhyrningurinn (sjálfsstjórn, samskipti og eftirtekt) og yfirlit yfir kjarnalíkönin sem allt hitt byggir á.

  2. 02

    Grunnurinn – linsur, þríhyrningar og lögmál (5 lexíur)

    Linsurnar sem færa þig frá dómi til skilnings, sár og varnarviðbrögð úr bernsku, Þroskaþríhyrningur bernskunnar og fjögur lögmál mannlegrar hegðunar.

  3. 03
    KJARNINN

    Þarfir, ákvarðanir og gildi (35 lexíur)

    Hjarta námskeiðsins: sex félagslegar þarfir, sex ákvörðunarstoðir og sex gildi. Í lokin lærir þú að setja þetta saman, velja orð sem passa og lesa fólk út frá einni setningu.

  4. 04

    Æfingar í að lesa fólk (3 lexíur)

    Þú æfir þig á köflum úr þremur opinberum viðtölum (á ensku) með vinnublaði. Lausnir eru ekki gefnar: þú þjálfar eigið auga og rökstyður niðurstöðuna.

  5. 05

    Næstu skref (2 lexíur)

    Æfingaáætlun svo færnin haldi áfram að vaxa eftir að námskeiðinu lýkur.

  • 49 lexíur á íslensku
  • Stutt æfing í hverri lexíu
  • Æfingar á raunverulegum viðtölum (á ensku)
  • Vinnublað fyrir viðtalsæfingarnar
  • Yfirlit yfir kjarnalíkönin
  • Heimildaskrá yfir rit á sviði sálfræði og mannlegrar hegðunar

KJARNINN · EINING 3

Þrjú lög undir hverri manneskju.

Þörf er það sem manneskjan þarf að fá frá öðru fólki. Ákvörðunarstoð er hvernig hún velur. Gildi er hvernig hún óskar þess að líf hennar sé.

LAG 1 · MARKMIÐIÐ

Sex félagslegar þarfir

„Hvað þarf þessi manneskja að fá frá öðrum?“

  • Mikilvægi – „vil skipta máli“
  • Velþóknun – „vil að mér sé hrósað“
  • Að tilheyra – „vil fá að vera með“
  • Greind – „vil vera talinn klár“
  • Samúð – „vil að mér sé sýnd umhyggja“
  • Styrkur – „vil virka sterkur“

LAG 2 · AÐFERÐIN

Sex ákvörðunarstoðir

„Hvernig tekur hún ákvarðanir?“

  • Frávik – að brjóta mynstur og fara aðra leið
  • Nýjungar – það sem er nýtt, spennandi og óþekkt
  • Félagsleg – hvernig öðrum mun líða
  • Fylgni við reglur – viðmið, hefðir og það sem telst „rétt“
  • Fjárfesting – það sem hefur þegar verið lagt í
  • Nauðsyn – tímapressa, afleiðingar og skilvirkni

LAG 3 · FRAMTÍÐARSÝNIN

Sex gildi

„Hvernig óskar hún þess að líf hennar sé?“

  • Frelsi – að enginn segi manni fyrir verkum
  • Vöxtur – að verða sú manneskja sem maður vill verða
  • Upplýsingar – að draga úr óvissu áður en valið er
  • Tenging – eitt djúpt samtal frekar en tíu yfirborðsleg
  • Viðurkenning – að aðrir sjái hvað maður hefur gert
  • Upplifanir – sögur og minningar frekar en hlutir

„Þetta snýst ekki um að setja fólk í kassa. Þú ert ekki að flokka manneskju fyrir lífstíð. Þú ert að lesa augnablikið.“

LEXÍA 3.2

SMÁLEXÍA · ÓKEYPIS

„Mér finnst bara best að gera hlutina einn.“

Hvað gæti hann í raun verið að segja? Veldu það svar sem þér finnst líklegast.

PRÓFAÐU Í DAG

Næst þegar einhver segir eitthvað sem pirrar þig, spurðu þig: „Hvað gæti hafa gerst í lífi þessarar manneskju sem gerir þessa hegðun skynsamlega fyrir hana?“

Byggt á lexíum 2.2, 3.32, 3.33 og 3.34. Í námskeiðinu er farið dýpra í hvert skref, með æfingum.

HEIMILDIR

Meðal ritanna sem námskeiðið byggir á

Námskeiðinu fylgir heimildaskrá yfir rannsóknir og rit á sviði sálfræði og mannlegrar hegðunar. Hér eru nokkur þekkt nöfn úr henni.

Strjúktu til hliðar →

AM
Þarfir

Abraham Maslow

1908–1970 · Sálfræðingur · Bandaríkin

Þekktastur fyrir kenningu sína um þarfastigann: að mannlegar þarfir raðist frá grunnþörfum upp í það að verða sú manneskja sem maður getur orðið.

VITNAÐ Í: Motivation and Personality, 1970

WS
Félagslegar þarfir

William Schutz

1925–2002 · Sálfræðingur · Bandaríkin

Setti fram FIRO-kenninguna um að samskipti fólks mótist af þremur þörfum: að fá að vera með, að hafa stjórn og að eiga nánd.

VITNAÐ Í: A Three-Dimensional Theory of Interpersonal Behaviour, 1958

EG
Ímynd og samskipti

Erving Goffman

1922–1982 · Félagsfræðingur · Kanada og Bandaríkin

Lýsti daglegum samskiptum sem eins konar leiksviði, þar sem fólk mótar þá mynd af sér sem það sýnir öðrum.

VITNAÐ Í: Behaviour in Public Places, 1963

SA
Hópurinn

Solomon Asch

1907–1996 · Félagssálfræðingur · Bandaríkin

Frægur fyrir tilraunir sem sýndu hve oft fólk lagar svar sitt að hópnum, jafnvel þegar hópurinn hefur augljóslega rangt fyrir sér.

VITNAÐ Í: Studies of independence and conformity: I. A minority of one against a unanimous majority, 1956

SM
Yfirvald og reglur

Stanley Milgram

1933–1984 · Félagssálfræðingur · Bandaríkin

Þekktur fyrir rannsóknir á hlýðni við yfirvald, sem sýndu hve sterkt aðstæður geta mótað hegðun venjulegs fólks.

VITNAÐ Í: Obedience to Authority: An Experimental View, 1974

DK
Ákvarðanir

Daniel Kahneman

1934–2024 · Sálfræðingur · Ísrael og Bandaríkin

Rannsakaði ásamt Amos Tversky hvernig fólk styðst við flýtileiðir í hugsun þegar það metur og velur. Hlaut Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2002.

VITNAÐ Í: Judgment under Uncertainty: Heuristics and Biases (með Slovic og Tversky), 1982

AT
Ákvarðanir

Amos Tversky

1937–1996 · Sálfræðingur · Ísrael og Bandaríkin

Rannsakaði ásamt Daniel Kahneman hvernig fólk metur líkur og tekur ákvarðanir við óvissu, og hvar dómgreindin á það til að skeika.

VITNAÐ Í: Judgment under Uncertainty: Heuristics and Biases (með Kahneman og Slovic), 1982

TG
Dómgreind

Thomas Gilovich

f. 1954 · Sálfræðingur · Bandaríkin

Hefur rannsakað hvers vegna við trúum hlutum sem standast ekki skoðun og hve mikið við ofmetum hvað aðrir taka eftir okkur.

VITNAÐ Í: How We Know What Isn't So: The Fallibility of Human Reason in Everyday Life, 1993

MS
Styrkleikar

Martin Seligman

f. 1942 · Sálfræðingur · Bandaríkin

Einn af upphafsmönnum jákvæðrar sálfræði, sem beinir sjónum að styrkleikum fólks og því sem lætur því líða vel.

VITNAÐ Í: Positive psychology progress (með fleirum), 2005

EKR
Missir og sorg

Elisabeth Kübler-Ross

1926–2004 · Geðlæknir · Sviss og Bandaríkin

Þekktust fyrir bókina On Death and Dying, þar sem hún lýsti því hvernig fólk tekst á við missi og sorg.

VITNAÐ Í: On Death and Dying, 1969

Þetta eru höfundar rita sem heimildaskrá námskeiðsins vísar í. Ekkert þeirra tengist námskeiðinu eða mælir með því.

FYRIR HVERJA?

Heiðarlega sagt.

Námskeiðið hentar ef

  • þú vilt skilja betur fólkið sem stendur þér næst: fjölskyldu, vini, maka eða vinnufélaga
  • þú vilt síður taka stuttum svörum og hrjúfu viðmóti persónulega
  • þú vinnur með fólki, til dæmis í stjórnun, þjónustu eða kennslu, og vilt velja orð sem lenda rétt
  • þú hefur áhuga á því hvernig fólk tekur ákvarðanir og hvað drífur það áfram
  • þú ert til í að gera stuttar æfingar og skrifa hjá þér það sem þú tekur eftir

Það hentar síður ef

  • þú leitar að leið til að stjórna fólki eða afhjúpa það. Námskeiðið snýst um að skilja
  • þú vilt skyndilausn. Þetta er færni sem byggist upp með æfingu
  • þú leitar að meðferð eða sálfræðiþjónustu. Námskeiðið kemur ekki í stað hennar
  • þú vilt ítarlegt fræðilegt yfirlit yfir rannsóknir. Námskeiðið er hagnýtt og heimildaskráin fylgir sem bakgrunnur
  • þú treystir þér ekki til að fylgja viðtölum á ensku í einingu 4

VERÐ

Allt námskeiðið. Ein greiðsla.

99 €

EIN GREIÐSLA · ENGIN ÁSKRIFT

  • 5 einingar og 49 lexíur
  • Stutt æfing í hverri lexíu
  • Æfingar á raunverulegum viðtölum (á ensku) með vinnublaði
  • Heimildaskrá yfir rit á sviði sálfræði og mannlegrar hegðunar

Greitt er í afgreiðslu Whop.

SPURNINGAR OG SVÖR

Gott að vita

Hvernig er námskeiðið uppbyggt?

Námskeiðið skiptist í 5 einingar og 49 lexíur. Hver lexía hefur texta, lykilatriði og stutta æfingu. Þú ferð í gegnum efnið á þínum hraða. Í byrjun er mælt með því að taka frá fastan tíma í hverri viku og hafa stílabók og penna við höndina.

Á hvaða tungumáli er námskeiðið?

Námskeiðið er á íslensku. Í einingu 4 æfir þú þig á köflum úr þremur opinberum viðtölum sem eru á ensku.

Þarf ég einhvern grunn?

Nei. Byrjað er á grunninum: hvernig þú horfir á fólk, hvaðan hegðun kemur og lögmálin fjögur. Síðan er byggt ofan á það skref fyrir skref. Það eina sem þú þarft er vilji til að gera æfingarnar.

Hvað kostar námskeiðið og er þetta áskrift?

Námskeiðið kostar 99 € í einni greiðslu. Þetta er ekki áskrift.

Hvernig fæ ég aðgang eftir kaup?

Greitt er í afgreiðslu Whop og aðgangurinn að námskeiðinu er í gegnum Whop.

Snýst þetta um að hafa áhrif á fólk?

Nei. Námskeiðið snýst um að skilja fólk, ekki að stjórna því eða afhjúpa það. Í inngangi þess stendur: „Allt sem þú lærir hér er til þess að skilja fólk betur og þjóna því betur. Aldrei til að blekkja, niðurlægja eða nýta sér sár annarra.“ Ein af grunnreglunum er að afhjúpa aldrei grímu annarra. Að benda fólki á grímuna vekur skömm og varnir.

Er þetta ekki bara að setja fólk í kassa?

Nei. Námskeiðið leggur áherslu á að þú sért ekki að flokka manneskju fyrir lífstíð heldur að lesa augnablikið. Þarfir færast líka til eftir því hverjum manneskjan er með, og þú lærir að byrja á besta giskinu og leita svo að vísbendingum sem gætu sýnt að það sé rangt.

Byggir námskeiðið á rannsóknum?

Námskeiðið byggir á sálfræði og rannsóknum á mannlegri hegðun og því fylgir heimildaskrá yfir rannsóknir og rit á því sviði. Námskeiðið sjálft er hagnýtt: lexíurnar kenna líkön og æfingar og vísa ekki í einstakar rannsóknir lið fyrir lið. Höfundarnir sem nefndir eru á þessari síðu eru höfundar rita í heimildaskránni. Enginn þeirra tengist námskeiðinu eða mælir með því.

Á bak við hverja grímu er manneskja.

Þegar fólki finnst það öruggt hættir það að leika og fer að vera það sjálft. Námskeiðið er leið til að æfa þann skilning, eitt samtal í einu.

Netnámskeið á íslensku · 5 einingar · 49 lexíur · Heimildaskrá fylgir

© Gríma · Á bak við grímuna

99 €

Ein greiðsla

Kaupa námskeiðið